Skilmálar og skilyrði

Eftirfarandi skilmálar gilda um notkun á vefsíðunni hreinnvodvi.is (áður coachclean.is) og um öll kaup eða áskriftir sem kunna að fara fram í gegnum vefsíðuna, nú eða síðar. Með því að nota vefsíðuna og/eða kaupa þjónustu samþykkir þú þessa skilmála.

Tengiliður
Ef þú hefur spurningar um skilmálana eða þarft aðstoð vegna áskrifta eða kaupa, hafðu samband:
Netfang: coach.orri@gmail.com

Pantanir, verð og framboð

Réttur til að hætta við pantanir

hreinnvodvi.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis ef rangar verðupplýsingar eða kerfisvillur koma upp. Einnig er heimilt að breyta verðum eða hætta að bjóða ákveðnar vörur eða þjónustu án fyrirvara.

Verðbreytingar á áskriftum

Verð geta breyst án fyrirvara. Ef verð á mánaðarlegri áskrift hækkar, verður reynt að upplýsa áskrifanda áður en breyting tekur gildi. Verðbreytingar taka þá gildi við næstu endurnýjun áskriftar.

Aðgangur og notkun efnis

Höfundaréttur

Allt efni á hreinnvodvi.is og allt efni í netnámskeiðum, æfingaprógrömmum og annarri stafrænnri þjónustu er verndað af höfundarétti og er eign seljanda. Óheimilt er að afrita, endurbirta, dreifa, deila eða selja efnið áfram, hvort sem er að hluta eða í heild.

Einstaklingsaðgangur

Aðgangur að vörum, áskriftum og stafrænu efni er persónulegur. Ekki er heimilt að deila aðgangi eða efni með öðrum sem ekki hefur greitt fyrir viðkomandi vöru eða þjónustu.

Greiðslur, áskriftir og endurgreiðslur

Mánaðarleg áskrift

Við skráningu í mánaðarlega áskrift skuldbindur kaupandi sig til að greiða áskriftargjald reglulega, á 30 daga fresti (eða samkvæmt því sem kemur fram í greiðslulausn við kaup).

Stök kaup

Við kaup á stökum námskeiðum eða annarri vöru er greitt fyrirfram. Ef um stafrænt efni eða netnámskeið er að ræða er almennt ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi og aðgangur veittur.

Endurgreiðsluréttur

Endurgreiðsluréttur myndast almennt ekki eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt gjald, þar sem greitt er fyrirfram fyrir aðgang að efni og/eða þjónustu.

Endurgreiðsluréttur stofnast ekki þótt kaupandi nýti sér ekki þjónustuna eða efnið sem keypt var.

Uppsögn áskriftar

Áskrift er almennt ekki uppsegjanleg nema vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Í slíkum tilvikum þarf að hafa samband í gegnum netfangið hér að ofan og málið verður metið í hverju tilfelli.

Réttur til að segja upp áskrift

hreinnvodvi.is áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samskipti eða samstarf milli kaupanda og þjálfara ganga ekki sem skyldi eða ef skilmálar eru brotnir, til dæmis með því að deila aðgangi eða efni áfram.

Eigin ábyrgð og heilsufar

Kaupandi ber sjálfur ábyrgð á notkun og framkvæmd æfinga, ráðlegginga og annars efnis/þjónustu sem veitt er í gegnum hreinnvodvi.is. Niðurstöður geta verið mismunandi eftir einstaklingum.

Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og metur sjálfur hvort hann treysti sér til að framkvæma æfingar eða fylgja leiðbeiningum. Mælt er með að hlusta á líkamann og taka tillit til eigin getu.

Ef um meiðsli, veikindi eða önnur heilsufarsvandamál er að ræða er mælt með að ráðfæra sig við sérfræðing áður en þjónusta er keypt eða æfingar hafnar.

Með kaupum á vöru eða þjónustu staðfestir kaupandi að hann nýti hana á eigin ábyrgð.

Trúnaður og persónuupplýsingar

Seljandi heitir fullum trúnaði um þær upplýsingar sem kaupandi veitir í tengslum við viðskipti og þjónustu. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema lög krefjist.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir skulu túlkaðir samkvæmt íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur skal hann rekinn fyrir íslenskum dómstólum.

Breytingar á skilmálum

hreinnvodvi.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir á vefsíðunni.