Algengar spurningar
Öll þjálfuninn fer í gegnum netið, þú skráir þig, færð aðgang að appi og þar inni svararu spurningalista sem ég geri pakkan þinn útfrá og hann yrði tilbuin 1-3 dögum frá skráningu
Ég hef mikla reynslu af þjálfun hef þjálfað á gólfi í 5 ár og með fjarþjálfun í 2 ár, hef hjálpað mikið af fólki að ná sýnum markmiðum, læra á næringu og líkamsrækt sem og bætt lífsgæði
Þar sem ég hef starfað við bæði einka og fjarþjálfun þá sé ég að fólk nær meiri árangri í fjarþjálfun heldur en einkaþjálfun þar sem öll ábyrgið er hjá ykkur, þú getur mætt eins oft og þú vilt,hvernær sem þú vilt, þú ert ekki að treysta á að 3 tímar í viku með þjálfara mun skila öllum árangrinum því það endar yfirleitt þannig og þú ert þá bara að mæta í mjög dýran leikfimistíma á meðan fjarþjálfun er 70-80% ódýrari og þá eru meiri líkur á að þú endist í þann tíma til að sjá alvöru árangur
Í minni reynslu þá gerir 1 mánuður mjög litið og allir sem hafa tekið 1 mánuð enda á að framlengja, það er ekki fyrir en eftir 8vikur í það minnsta sem fólk fer að sjá alvöru árangur og þess vegna bíð ég ekki uppá 1 mánuð því að ég vill að fólk sem kemur til min fái það sem það skráir sig í
Það er stöðumat. Sem er gert vikulega þar sem þú sendir mér myndir,ummálsmælingar og svarar nokkrum spurningum sem ég fer yfir og sé hvort allt sé ekki á réttri leið og beri breytingar á plani ef þess þarf
Ég get gert matarplön en það er enginn að fara að borða eftir pdf skjali alla æfi og það gefur ekki fólki svigrúmið sem það þarf og vill.
Ég tel það betra ef fólkið mitt læri á næringuna sína, þannig ég vill kenna öllum mínum viðskiptavinum á næringagildi því að það gefur þeim mikið af möguleikum og hjálpar til að viðhalda árangri
Það eru myndbönd og útskýringar með hverri æfingu á planinu sem ég geri fyrir þig og vill ég að allir senda mér myndbönd af þeim að lyfta, ég fer svo yfir myndbandið og kem með punkta um hvað mætti gera betur, því það er alltaf! hægt að gera betur
Nei því miður þú ert skuldbundin í þann tíma sem þú skráir þig
Já auðvitað er besta leiðinn til að toppa árangurinn í íþrótt að vita hvernig best er að nærast, það ættu allir sem eru alvara um að ná árangri í sinni íþrótt að kunna á næringagildi eða macros
Því miður fer þjálfuninn alfarið í gegnum netið en það er hægt að bóka fjarfund öðru hvoru
18 ára nema með leyfi frá foreldri
Næringargildi eru orkuefnin sem koma úr matnum sem eru fjórir flokkar (prótein, fita, kolvetni og alkahól) og út frá magni af þeim myndast kaloríur sem er lika mæling á orku og með því að nota þessi gildi lærir þú mjög mikið á þinn líkama og orkuþörf
Ég mæli með að þú gerir það allavega í byrjun til þess að læra á skammtastærð en það er ekkert heilagt en ef þú vilt ná max árangri þá er vigtun á mat sterkasta verkfærðið í þinni kistu
Nei því miður, það þurfa allir sitt persónulega plan og markmið